Hrund Valgeirsdóttir
næringarfræðingur

Ég hjálpa konum að léttast og finna jafnvægi í kringum mat, án öfga eða megrunarkúra. Námskeið og næringarráðgjöf fyrir konur yfir fertugt sem vilja sjálfbærar breytingar sem endast.

Hrund Valgeirsdóttir næringarfræðingur

Þjónusta

Meðmæli

„Mér líður í fyrsta skipti á ævinni þannig að ég eigi eftir að halda þessum holla lífsstíl áfram en ekki gefast upp á honum eins og ég hef alltaf gert."

Berglind

„Ég lærði fyrst og fremst að það er ÉG sem ræð hvað ég borða."

Aðalbjörg

„Það allra besta var að ég var aldrei svöng, frekar var ég mjög vel nærð."

Þorbjörg

„Hausinn er ósjálfrátt kominn á annan stað og samband við mat er allt annað."

Hrefna

Upplýsingar

Hrund Valgeirsdóttir næringarfræðingur

Hrund Valgeirsdóttir hjá Næring & Ráðgjöf er löggiltur næringarfræðingur (MSc) sem útskrifaðist í febrúar 2012 frá Háskóla Íslands.

Hrund var sjálf föst í vítahring megrunarkúra í mörg ár. Hún léttist um 40 kg á fjórum árum, ekki með öfgum heldur með litlum, sjálfbærum breytingum.

Í dag hjálpar hún konum að skapa heilbrigt samband við mat, hlusta á líkamann og finna jafnvægi sem endist.

Nýtt á vefsíðu