Hægt er að mæta á staðinn eða halda fræðsluna í gegnum Teams/Zoom. Við veljum fyrirkomulag sem hentar ykkar starfsmannahópi best.
Fræðsla fyrir vinnustaði
Fyrirlestrar og vinnustofur um orku, einbeitingu og jafnvægi í mataræði: hagnýt fræðsla sem starfsfólk getur nýtt strax í daglegu lífi.
Fræðsla um orku og jafnvægi í mataræði
Hagnýt leiðsögn fyrir starfsfólk til að halda orkunni stöðugri yfir vinnudaginn án öfga, bannlista eða skyndilausna.
- Á staðnum eða í fjarfundi (Teams / Zoom)
- Í boði sem fyrirlestur eða vinnustofa, eftir því hvað hentar best
- Umfjöllunarefni aðlagað að þörfum fyrirtækisins
- Hentar vel t.d. í heilsuviku eða á starfsdögum
Af hverju skiptir þetta máli fyrir starfsfólk?
Vellíðan starfsfólks hefur bein áhrif á orku, einbeitingu og afköst. Með réttum næringarvenjum er hægt að:
- draga úr sykurlöngun og sykursveiflum yfir vinnudaginn
- halda orkunni stöðugri og bæta einbeitingu
- finna jafnvægi án öfga eða skyndilausna
Hvað fær starfsfólk úr fyrirlestri eða vinnustofu?
- Einföld skref sem virka í daglegu lífi
- Skilning á blóðsykursjafnvægi og hvernig það hefur áhrif á orku
- Raunhæfar aðferðir til að halda jafnvægi í kringum mat, án bannlista
Form fræðslunnar
Veldu það form sem hentar ykkar fyrirtæki best:
45–60 mínútur
- Hentar vel fyrir stærri hópa
- Fókus á fræðslu, vitund og hagnýt ráð
- Lítil eða engin virk þátttaka
90–120 mínútur
- Minni hópar
- Verkefni, umræður og meiri þátttaka
- Dýpri vinna með efnið
Fyrirkomulag og aðlögun
Fyrirlestrar og vinnustofur eru sniðnar að þörfum hvers fyrirtækis.
Ef þið hafið sérstakt umfjöllunarefni í huga er hægt að aðlaga innihald að ykkar áherslum (t.d. orka, sykurlöngun, jafnvægi í daglegu lífi).
Hentar vel í t.d. heilsuviku eða á starfsdögum fyrirtækja. Markmiðið er að starfsfólk fari út með hagnýt verkfæri sem nýtast strax.
Um Hrund
Ég er næringarfræðingur (MSc, HÍ 2012) og starfa hjá Næring & Ráðgjöf slf. Ég hef sérhæft mig í að hjálpa fólki að finna jafnvægi í kringum mat með raunhæfum skrefum sem virka í annasömu daglegu lífi.
Fræðslan byggir á faglegri þekkingu og reynslu, og er sett fram á aðgengilegan hátt með áherslu á það sem fólk getur raunverulega innleitt.
Næstu skref
Viltu fá nánari upplýsingar eða ræða hvað hentar þínu fyrirtæki?
Næring.com