Námskeið með næringarfræðingi

Ég heiti Hrund Valgeirsdóttir og ég er næringarfræðingur. Námskeiðin mín eru fyrir konur sem eru þreyttar á megrunarkúrum og vilja léttast á rólegan, sjálfbæran hátt, án öfga og án banna.

Hvort sem þú ert yfir fertugt, á breytingaskeiði eða einfaldlega þreytt á að vera alltaf á byrjunarreit, þá hjálpa þau þér út úr allt-eða-ekkert mynstrinu og byggja upp jafnvægi í kringum mat sem endist.

Ég kenni þér sömu nálgun og ég notaði sjálf þegar ég léttist um 40 kg, með einföldum venjum sem festust, ekki með hörku.

Vefnámskeið

Frá þátttakendum í Frjáls frá sykurlöngun

„Það sem ég fékk mest út úr því er að breyta litlum hlutum í einu og ekki gefast upp þó illa gangi í fyrstu, semsagt hætta að hugsa allt eða ekkert."

Jóna

„Hvað þetta var auðvelt. Ég myndi hiklaust mæla með þessu, sérstaklega fyrir þá sem hafa verið að hugsa um að minnka sykurneysluna. Þetta ýtir manni af stað."

Fjóla

„Fræðsla um blóðsykur og mikilvægi þess að vera meðvituð um ákvarðanir sem við tökum. Sjálf hef ég verið föst í svarthvítu, en nú leyfi ég mér stundum smá og held ekki endalaust áfram."

Katrín

Þetta eru dæmi um reynslu þátttakenda.