Frá vítahring megrunarkúra í jafnvægi:
Saga mín og lærdómurinn
Ég var föst í vítahring í mörg ár, en svona breytti ég lífinu mínu.
12.12.2025
Ég ætla að vera alveg hreinskilin.
Áður en ég lærði að ná jafnvægi í mataræðinu og heilsunni var ég stöðugt að byrja upp á nýtt.
- Á mánudegi
- Eftir afmælisveisluna
- Eftir helgina
- Eftir jólin
- Í janúar
„Æ, ég er búin að klúðra þessu, ég byrja bara aftur á morgun… eða á mánudaginn… eða í janúar.“
Þetta var alltaf sama mynstrið: allt eða ekkert.
Ef dagurinn var ekki fullkominn, þá var hann ónýtur.
Ef ég fékk mér smáköku, þá gat ég alveg eins haldið áfram og „borðað allt“.
Og þetta dró mig niður í mörg ár.
Ég var föst á þessum stað í mörg ár
Ég var þreytt.
Ég var orkulaus.
Ég var ósátt við sjálfa mig og líkamann.
Ég fann fyrir miklum sjálfsásökunum og stjórnleysi.
Og það versta?
Ég hélt þetta væri mín sök.
Að ég hefði engan viljastyrk.
Að ég gæti ekki „haldið neitt út“.
Að ég væri bara ein af þessum konum sem myndu aldrei ná að breyta heilsunni sinni til lengri tíma.
En það var aldrei lykilinn.
Lykillinn var sá að ég þurfti að breyta um leið.
Hvað breytti öllu?
Það var ekki megrunarkúr, ketó, carnivore, fasta eða lyf.
Heldur þetta:
- Að sleppa fullkomnun: Ég áttaði mig á því að 60–80% er margfalt betra en 0%.
- Að hlusta á líkamann: Að skilja svengd, seddu, svefn, sveiflur, streitu og hvað matur raunverulega gerir fyrir líðan.
- Að byggja venjur sem endast: Ekki öfgar, heldur litlar, framkvæmanlegar breytingar.
- Að tengja saman andlega og líkamlega heilsu: Hreyfing sem gaf mér orku. Matur sem róaði ekki bara sykurþörfina, heldur líka taugakerfið.
- Að hætta að vinna á móti líkamanum: Ekki refsa. Ekki vera með endalausa sjálfsgagnrýni. Ekki byrja upp á nýtt á mánudegi.
Vegna þess að við lærum ekki að gera þetta með sjálfsumhyggju, skýrleika og raunhæfum skrefum.
Við lærum megrunarkúra.
Við lærum öfgar.
Við lærum að hata sjálfar okkur í form.
Við lærum að bíða eftir „rétta tímanum“.
Við lærum svart-hvíta hugsun.
En við lærum aldrei: hvernig við losnum við gömlu mynstrin, hvernig við byggjum nýjar venjur sem endast, eða hvernig við fáum trú á að þetta sé mögulegt fyrir okkur!
Ég ætla að hjálpa þér að gera þetta öðruvísi í ár.
Ef þú ert á stað þar sem:
- þú ert orðin þreytt á að byrja alltaf aftur
- þú vilt léttast á heilbrigðan hátt
- þú vilt ná jafnvægi í mataræðinu
- þú vilt sleppa gömlum mynstrum og sjálfsásökunum
Ókeypis vinnustofa 24. og 25.mars 2026 kl. 18
Þú munt öðlast:
- skýrari sýn fyrir vorið og sumarið svo þú vitir hvert þú ert að stefna
- raunhæf næstu skref sem passa inn í lífið þitt svo breytingarnar verði eitthvað sem þú getur haldið, ekki bara byrjað
- nýtt sjónarhorn á lífsstílsbreytingar svo þú hættir að upplifa þig sem vandamálið og byrjir að skilja hvað raunverulega styður þig
- meiri trú á sjálfa þig svo þú getir haldið áfram líka þegar hlutirnir eru ekki fullkomnir
Meira um ferlið með mér
Meira um ferlið með mér
Næring.com