Hvað kostar það þig að byrja upp á nýtt með heilsuna?
Það kostar ekki bara tíma eða nokkrar vikur sem „fóru úr skorðum“. Og það kostar ekki bara það að þú sért aftur á byrjunarreit. Það kostar meira en það.
Flestar konur skortir ekki þekkingu á hvað er hollt og hvað virkar.
Margar hafa prófað alls konar plön, átök, áskoranir, mataræði og megranir.
Vandi þeirra er ekki að byrja heldur að vera alltaf að byrja aftur.
Kannski kannastu við að hafa ákveðið að taka þig á og byrja á mánudegi, eftir ferðalag, eða eftir tímabil þar sem þú varst „ekki alveg nógu dugleg“.
Og fyrstu dagarnir ganga vel. Þú finnur fyrir stjórn og jafnvel smá stolti.
Svo kemur dagur þar sem þú sefur illa eða það er álag í vinnunni. Eða þér er boðið í veislu eða saumaklúbb.
Og þú dettur aðeins úr takti.
Og þarna gerist það. Þú færð þér eitthvað sem var ekki á planinu eða sleppir æfingu. En vandinn liggur ekki í því sem þú fékkst þér,
heldur í setningunni sem þú segir við sjálfa þig.
Það gæti verið: „Nú er þetta farið.“ og
„Ég byrja aftur á mánudag.“
Og þá byrjar hringurinn aftur.
En hvað kostar það?
Ekki bara vikan, heldur trúin á þig.
Í hvert skipti sem þú byrjar aftur, og endar á sama stað, þá tekur það smám saman af sjálfstraustinu með sér.
Þú ferð að hugsa:
„Kannski er ég bara svona.“
„Kannski tekst mér þetta aldrei.“
„Ég virðist alltaf lenda á sama stað.“
Þetta er raunverulegi kostnaðurinn.
Það kostar orku
Að byrja aftur krefst ákvörðunarorku, skipulags, viljastyrks og athygli.
Að byrja upp á nýtt aftur og aftur er þreytandi. Ekki bara líkamlega heldur andlega.
Þú ert stöðugt að taka sömu ákvarðanirnar.
Halda sömu loforðin.
Upplifa sömu vonbrigðin.
Það er þreytan sem margar konur finna yfir þessari endalausu hringrás.
Það kostar virðingu
Ekki af því þú ert ekki dugleg. Heldur af því þú hættir smám saman að treysta eigin ákvörðunum.
Þegar þú segir: „Núna ætla ég að gera þetta.“ Og þú hefur sagt það oft áður. Þá gerist eitthvað innra með þér.
Sjálfsvirðingin minnkar smám saman.
Og samt heldur þú áfram að reyna því þú vilt ekki gefast upp.
En kannski er spurningin ekki:
„Hvernig byrja ég betur?“
Heldur:
„Hvernig hætti ég að byrja aftur?“
Það er stór munur.
Að byrja betur snýst um:
- Strangara plan
- Skýrari reglur
- Meiri aga
- Að skilja hvar þú missir taktinn
- Að byggja upp lágmarksgrunn sem heldur
- Að hætta að túlka frávik sem mistök
- Að velja framhald í stað þess að byrja uppá nýtt
Ef þú horfir heiðarlega á síðustu ár. Hversu oft hefur þú byrjað aftur? Og hvað hefur það kostað þig? Ekki í kílóum eða dögum. Heldur í trú á sjálfa þig.
Kannski er kominn tími til að fara ekki í nýtt átak. Heldur staldra við, skoða mynstrið og velja stefnu sem tekur lífið með í reikninginn. Það er nákvæmlega það sem við gerum á vinnustofunni Veldu þig í vor. Það er ekki ný byrjun, heldur skýrari stefna og raunhæf leið sem endist. Ef þú ert þreytt á að byrja upp á nýtt aftur og aftur, þá ertu líklega tilbúin í eitthvað annað.
Ókeypis vinnustofa 24. og 25.mars 2026 kl. 18
Þú munt öðlast:
- skýrari sýn fyrir vorið og sumarið svo þú vitir hvert þú ert að stefna
- raunhæf næstu skref sem passa inn í lífið þitt svo breytingarnar verði eitthvað sem þú getur haldið, ekki bara byrjað
- nýtt sjónarhorn á lífsstílsbreytingar svo þú hættir að upplifa þig sem vandamálið og byrjir að skilja hvað raunverulega styður þig
- meiri trú á sjálfa þig svo þú getir haldið áfram líka þegar hlutirnir eru ekki fullkomnir
Meira um ferlið með mér
Meira um ferlið með mér
Næring.com