Af hverju virka megrunarkúrar ekki?
og hvað virkar í staðinn?
Margar konur hafa prófað að fara í megrun einhvern tímann á lífsleiðinni. Sumar hafa jafnvel náð árangri í nokkrar vikur eða mánuði. En það sem gerist hjá flestum er að þær enda alltaf aftur á byrjunarreit. Það er vegna þess að kúrar eru hannaðir til skamms tíma, ekki fyrir raunverulegt líf.
Megrun byggir á afneitunFlestir megrunarkúrar kenna okkur að matur skiptist í "góðan" og "slæman" mat. Þetta skapar samband við mat sem byggir á sektarkennd, og líkamsvitundin sem segir þér venjulega hvað þú þarft, hún dofnar. Þegar þú neitar líkamanum um næringu, þá svarar hann með hungri, löngunum og orkuleysi.
Líkami í varnarstöðuÞegar þú borðar minna en líkaminn þarf, þá hægir hann á brennslu, eykur streituhormón og sendir skilaboð um hungur. Þess vegna finnst þér eins og þú getir ekki haldið út kúrinn því hann fer gegn því sem líkaminn þinn er hannaður til að gera: lifa af!
Megrun tekur frá þér sjálfstraustÞegar við upplifum stöðugar sveiflur, eins og að byrja á mánudegi og "klúðra" á fimmtudegi, þá minnkar traustið á okkur sjálfum. En það er í raun ekki þú sem ert að bregðast, heldur kerfið sem lofaði þér einfaldri lausn.
5 merki um að þú sért föst í megrunarhugsun
Þú þarft ekki að vera á megrunarkúr til að vera föst í hugsun sem kemur úr kúrmenningu.
Hér eru 5 algeng tákn sem konur greina ekki alltaf sem vandamál en sem halda þeim föstum í sveiflum, skömm og orkuleysi:
-
Þú flokkar mat sem "góðan" og "slæman"
- T.d. salat = "gott", brauð="slæmt"
- Þú finnur sektarkennd þegar þú borðar eitthvað "óhollt"
-
Þú sleppir kolvetnum eftir kl. 18
- Ekki því líkaminn biður um það, heldur því þú heldur að annars fitnarðu
- En þú vaknar oft þreytt og jafnvel mjög svöng daginn eftir
-
Þú „byrjar aftur á mánudegi“ í hvert skipti sem þú borðar eitthvað utan planið
- Ein kökusneið = ég klúðraði => byrja aftur eftir helgi
-
Þú heldur að það að borða meira sé að „missa stjórn“
- Þó þú sért svöng og orkulítil, finnst þér þú verða að stoppa að borða
-
Þú treystir ytra plani betur en eigin líkama
- App, megrunarkúr, matarplan segir þér hvað, hvenær og hversu mikið
- Þú borðar jafnvel þó þú sért ekki svöng, eða sleppir því þó þú sért það
Sjálfbært jafnvægi byggist ekki á aga eða reglum eins og megrunarkúrun, heldur á virðingu.
Það þýðir að þú þarft að læra að:
- hlusta á svengdar- og seddu merki,
- styðja líkamann með næringu í stað þess að refsa honum með megrun,
- og vinna með streitu, svefn og tilfinningar sem hluta af heildarmyndinni
Fleiri takmarkandi matarvenjur
Fleiri takmarkandi matarvenjur
Næring.com