Upplýsingar

Hrund Valgeirsdóttir, næringarfræðingur (MSc)

Hrund Valgeirsdóttir er löggiltur næringarfræðingur (MSc) og útskrifaðist í febrúar 2012 frá Háskóla Íslands. Hún býður uppá vef-næringarráðgjöf í gegnum Zoom eða síma eftir því sem hentar. Einnig býður hún upp á yfirferð á matardagbók, persónulegt matarprógram, fyrirlestra og næringarútreikninga.

Hrund leggur mikla áherslu á að fólk fái sem mesta næringu úr þeim matvælum sem er neytt og læri á líkamleg viðbrögð þegar kemur að skammtastærðum. Einnig að þeir sem leita ráðgjafar læri að eiga gott og heilbrigt samband við mat án þess að fara í öfgar.