Heilsuvöfflur
03.05.2020 - Hrund Valgeirsdóttir
Uppskrift af sirka 4 stk heilsuvöfflum. Frábært að fá sér með sykurlausu Nutella, rjóma eða bláberjum til dæmis.
Magn |
Hráefni |
60 g | Haframjöl |
80 g | Heilhveiti |
4 stk | Egg |
70 g | Grísk jógúrt |
15 g | Erythritol (eða annar "sykur") |
- Setja allt saman í góðan blandara | |
- Hella á vöfflujárnið | |
- Finna eitthvað til að toppa! | |
- Njóta :) |