Heilsuráð #3 - Velja heilkornavörur

01.09.2012 - Hrund Valgeirsdóttir

Undanfarin ár hefur umræðan um að velja heilkornavörur umfram kornvörur sem eru fínunnar færst í aukana. Einnig er ein af ráðleggingum um mataræði Íslendinga að nota gróft brauð og trefjaríkt kornmeti. Ástæðurnar bakvið þessar ráðleggingar eru að grófu kornvörurnar eru heilsusamlegri en þær fínunnu vegna þess þær innihalda meiri trefjar ásamt öðrum næringarefnum. Trefjaríkt fæði getur minnkað líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki 2 og sumum tegundum krabbameina. 

Hérna í töflunni fyrir neðan sjást nokkur dæmi um hvernig hægt er að velja heilsusamlegri kornvörur þegar kemur að trefjainnihaldi


Til að auðvelda val á brauði út í búð, þá er gott að miða við að brauðið innihaldi að minnsta kosti 6 grömm af trefjum í 100 grömmum. Sum heilhveiti- og speltbrauð innihalda ekki það mikið og þess vegna er ágæt venja að skoða innihaldslýsinguna áður en brauðið er valið. Grófar heilkornavörur hafa aukist til muna síðustu árin og þess vegna ætti að vera auðveldara að velja þannig vörur í dag en áður. Einnig er hægt að baka sín eigin brauð með því að nota haframjöl ásamt heilhveiti, rúgi eða byggi og jafnvel hveitikími og fræjum sem uppistöðu og halda salti og sykri í lágmarki sem brauð út í búð geta oft verið rík af.
Hérna í töflunni fyrir neðan er sýndur munur á trefja- og fólatinnihaldi nokkurra tegunda brauða og korntegunda, en innihaldsupplýsingar voru fengnar úr ÍSGEM gagnagrunninum



Þannig að næst þegar þið eruð stödd úti í búð að velja ykkur brauð, pasta, hrísgrjón eða aðrar kornvörur, þá væri sniðugt að staldra við og velja trefjaríkari vöruna.







Pistlar